Kæru Inner Wheel félgar.
Tíminn líður, senn komin jól og svartasta skammdegið framundan. Við hér í umdæmisstjórninni erum þó farnar að líta til vorsins og huga að okkar árlega umdæmisþingi. Búið er að ákveða daginn sem er 24. mai 2008 í safnaðarheimili Garðabæjar. Vonumst til að sjá sem flestar ykkar þennan dag.
Þið hafið vonandi allar heyrt af kortasölu okkar sem er í fullum gangi og þó að kortin séu ekki með dæmigerðri jólamynd eru þau bæði falleg og styðja góðan málstað og geta því vel borið kærleiksríkar jólakveðjur til vina og ættingja. Allur ágóði sölunnar rennur til FAAS, félags aðstandenda Alzheimerssjúkra.
Einlægar óskir um gleðiríka jólahátíð.
Sigríður Antonsdóttir, ritari

